Um okkur

Sjóðurinn góði var stofnaður 2008 í kjölfar bankahrunsins.

Sjóðurinn er samstarfverkefni ýmissa kvenfélaga, Lionsklúbba, kirkjusókna í Árnessýsu, Félagþjónustunnar í Árborg, Hveragerði, Ölfusi og uppsveitum Árnessýslu og deilda Rauða krossins í Árnessýslu.

Hlutverk sjóðsins góða er að styrkja einstaklinga og fjölskyldur sem standa höllum fæti og eiga ekki fyrir nauðþurftum fyrir jólin og einnig á vormánuðum fyrir fermingar.

Gjafir til sjóðsins góða berast frá einstaklingum, félagasamtökum, stofnunum og verslunum bæði í formi peninga og jólagjafa. Tölvubúnaður sem notaður er við umsóknir og úthlutanir hefur Tölvu og Rafeindaþjónustan, TRS lánað okkur án endurgjalds í nokkur ár.

Einnig má nefna húsnæði, veitingar, prjónles að ógleymdri mikilli sjálfboðavinnu.

Starfshóp skipa fulltrúar áðurnefndra aðila og Hjálparstofnunar kirkjunnar, starfshópurinnn sér um að skipuleggja umsóknarferlið og annast úthlutun. Stuðst er við viðmið Hjálparstofnunar kirkjunnar varðandi mat á umsóknum.

Úthlutað er í desember úr sjóðnum vegna undirbúning jólanna og á vormánuðum vegna ferminga.

Allar umsóknir eru trúnaðarmál.

Í desember 2022 var úthlutað úr sjóðnum til 335 einstaklinga eða fjölskyldna að upphæð 11.415.000 milljónir ásamt gjöfum frá ýmsum aðilum.

Jólatré voru staðsett í Hveragerði og á Selfossi og hægt var að setja pakka þar undir til gjafa.

Hægt er að leggja inn á Sjóðinn góða allt árið um kring -325-13-301169 kt.560269-2269-

Starfshópur Sjóðsins góða þakkar öllum þeim aðilum sem styrkt hafa sjóðinn á síðasta ári.